SONETT hefur verið brautryðjandi í þvotta- og hreinsiefnum úr lífrænt ræktuðum hráefnum frá því árið 1977. SONETT vörur eru nú fáanlegar í flestum
löndum Evrópu. Eftirspurnin vex einnig stöðugt í löndum utan Evrópu.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Deggenhausertal, nálægt Bodensee í SuðurÞýskalandi.
Um það bil 90% af framleiðsluvörum SONETT fara í gegnum verslun með heilsuvörur. Starfsmenn sem vinna hjá SONETT eru nú 42 og þeim fjölgar stöðugt.
Fyrirtækjastefna okkar og hugmyndafræði byggir á andlegum
vísindum mannspekinnar:
Meðhöndluð innihaldsefni:
Vegna ábyrgðar okkar gagnvart mengun á affallsvatni, bætum við
meðhöndluðum balsamefnum við SONETT þvotta- og hreinsiefnin í
svokölluðum oloid mixer, og við vinnum með meðhöndlað vatn sem
er unnið í 12 egglaga glerílátum þar sem látin er myndast hringiða í
vatninu. Í þessum bæklingi nefnt “hvirflað vatn”.
Val á hráefnum sem við notum:
Öll hráefni sem við notum brotna fullkomlega niður í náttúrunni og
valda mjög sjaldan ofnæmi. Við notum fyrst og fremst hráefni úr
jurtum og steinefnum. Það þýðir að þau eru laus við ensím og
kemískt unnin efni, s.s. ilmefni, litarefni, rotvarnarefni , sterk
bleikiefni o.s.frv.
Hráefni frá vottaðri lífrænni og lífrænt-dýnamískri ræktun:
100% af ólívuolíunni, repjuolíunni , kókosolíunni og shea smjörinu
sem við notum kemur frá vottaðri lífrænni ræktun, sem og einnig
90% af ilmkjarnaolíunum sem við notum.
Skipulag SONETT er þríþætt:
SONETT OHG hefur 3 aðaleigendur sem sjá um viðskiptahliðina –
þróun, framleiðslu og sölu á lífrænum þvottaefnum og hreinsiefnum.
SONETT VERMÖGENSVERWALTUNG GMBH er eigandi eigna,
bygginga og tækja, sem eru leigð til SONETT OHG.
Ekki-hagnaðar (non-profit-making) SONETT FOUNDATION er eigandi
SONETT VERMÖGENSVERWALTUNG GMBH. SONETT FOUNDATION
styrkir ekki-hagnaðar verkefni, þ.e. verkefni á sviði vatnsrannsókna,
þróunar á mannúðlegum prófunum í stað dýratilrauna og þjálfun á
sviði rannsókna á mótandi kröftum vatns.
Vegna þessarar uppbyggingar, er SONETT fyrirtækið ekki lengur í einkaeigu,
og getur ekki gengið í erfðir og ekki verið selt. Þetta býður upp á
þá kröfu og möguleika fyrir SONETT að um það verði hugsað og því stýrt
af hæfileikaríku fólki sem hefur rétta andann sem kemur fram í mottói
SONETT:
Mildar sápur og hreinsiefni
sem vernda náttúrulegar vatnsauðlindir
undirstöðu lífsins
Frá því 2005, hefur öll vörulínan frá SONETT verið vottuð samkvæmt stöðlum tveggja lífrænna vottana, ECOGARANTIE og ECOCONTROL.
SONETT er fyrsti framleiðandi þvottaefnis sem fær vottun frá ECOGARANTIE.
Með ECOCONTROL vottunarmerkinu, fæst vottun og staðfesting frá óháðri vottunarstofu, um að við uppfyllum alla gæðastaðla SONETT. Nákvæmar upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu okkar: www.sonett.eu
duft framleiðsla
fljótandi framleiðsla
UmbúðamerkingarÍ vinnustofu Camphill Lehenhof
hádegishlé
oloid
.